Meirihluti fólks er með fóbíu fyrir köngulóm, það er eitthvað við þær sem fólk bara þolir alls ekki. Það eru til margar tegundir köngulóa hér á landi og ljósmyndarinn Guðný hefur nú aðeins fengið að kynnast þeim.
Hún gerði færslu á Facebook þar sem hún talaði um að köngulærnar í garðinum væru ekki að gera góða hluti. Hún deildi líka myndum af þeim og þar má sjá hvorki meira né minna en þrjár tegundir af köngulóm.








