Hættulegt dýrafóður á ÍSLANDI – ,,Hundurinn minn fékk sýkingu eftir þetta fóður“ – MYND

Nú getur þú fengið hundafóðrið Irish Rover á mögnuðu tilboði hér á Íslandi – 15kg á 1.459 krónur. Er þetta of gott til að vera satt?

Eins og greint var frá á heimasíðunni eirikurjonsson.is þá eru þó nokkrir á því og vara við þessu hættulega hundafóðri.

Hún Berglind Guðbrandsdóttir er hundaþjálfari og hundaatferlisfræðingur hjá Hundasetrinu og vinnur líka á dýraspítala: ,,Ég get sko sagt að þið sparið ekki til lengri tíma að hafa þá á þessu því þeir enda dauðveikir. Hundar þurfa næringarríkan mat rétt eins og við.“

Kristjana Knudsen: ,,Þið sjáið bara myndina af hundinum á fóðurpokanun. Honum líður ekki vel. Soldið eins og hann sé að drepast bara.“

Kristinn Gunnarsson: ,,Hundurinn minn fékk sýkingu eftir þetta fóður og ég þurfti að senda hann í sveitina.“

Auglýsing

læk

Instagram