Hjörtur Sturluson tók þessar mögnuðu myndir af háhyrningafjölskyldu sem heilsaði upp á Hellnar á Snæfellsnesinu. Fjölskyldan kom alveg upp að bryggjunni.
Þið getið smellt á myndirnar til að stækka þær.
Það gerist reglulega að Háhyrningafjölskylda heilsi upp á Hellna en í síðustu viku fundu þeir eitthvað voðalega spennandi alveg upp við bryggju, kannski bara selinn sem hefur heimsótt okkur síðustu ár? Vonandi bara eitthvað minna nasl í þetta sinn.




