Hann Hugleikur Dagsson skrifaði þessa færslu á Facebook eftir að ónefndur aðili (sem hann kallar nú Grinch) hafði samband við hann og bannaði honum að nota ,,HÚ!“ – því að Grinch sagðist eiga einkaréttinn.
Málið er vægast sagt súrt:
„How The Grinch stole víkingaklappið.
Þessa teikningu, sem kallast einfaldlega “HÚ!”, teiknaði ég sumarið 2016. Stuttu síðar prentuðum við hjá vefbúðinni Dagsson.com þennan bol. Voða gaman. Allir sáttir. Seldist vel. En um daginn fengum við skilaboð frá ónefndum manni (Við skulum kalla hann Grinch) sem tjáði okkur að hann ætti orðið “HÚH!” og aðeins hann mætti prenta það á boli. Þetta kom okkur á óvart.
Í fyrsta lagi vissum við ekki að það væri hægt að eiga þennan óeiginlega sándeffekt. Við héldum að allir ættu þetta hljóð/orð/hróp.
Í öðru lagi hélt ég að við hefðum sjálf stolið víkingaklappinu frá skotlandi eins og almennilegir víkingar.
Í þriðja lagi stendur ekki HÚH! á okkar bol heldur HÚ!. Sem að mínu mati er íslenskari stafsetning en HÚH! því við endum orð ekki á hái hérlendis.
Þessvegna ákváðum við að reyna að kaupa réttinn á HÚ! og deila þeim rétti með þjóðinni. Því kommon, það er ekki hægt að eiga HÚ! frekar en það sé hægt að eiga fólk eða kveikjara.
En þá tjáir einkaleyfastofa okkur að HÚH! og HÚ! sé sama orðið. Þannig að Grinch á bæði HÚH! og HÚ!. Og við megum ekki prenta þessa mynd á boli. Því bara hann má. Því að hann sagði pant ég.
Ég skil ekki afhverju hann er að gera ves. Mitt HÚ! þarf ekki að trufla hans HÚH!. Við ættum öll að geta HÚ!að saman. Er það ekki það sem HÚ(H)! gengur útá?
Allavega. Dagsson.com er með fullt af á HÚ! bolum (eða “Maður að fagna” eins og hann heitir núna) sem við þurfum að losna við áður en Grinch bankar á gluggann. Tilvalið fyrir HM!
Og fyrst það er mottumars ætlum við að gefa helming ágóðans til krabbameinsfélags Íslands.
Fyrir hönd dagsson.com,
Hugleikur
#mitthú
Bolirnir fást hér: https://dagsson.com/collections/shop-dagsson/products/hu-tshirt
Og svo er hægt að hafa samband í dagsson@dagsson.com“
