Helga varð vitni af því þegar keyrt var á stúlku á hjóli – Gleymum ekki því sem getur bjargað lífum!

Helga María varð vitni að því þegar keyrt var á stúlku – og er með þessi mikilvægu skilaboð til okkar sem erum í umferðinni.

Í morgun varð ég vitni að því að keyrt var á fyrrum skólasystur Emilíu þar sem hún var að fara yfir götu á hjóli. Sem betur fer fór allt vel en ég vil brýna fyrir fólki að aka varlega nálægt skólum og líta vel í kringum sig. Nú er farið að birta og snjórinn farinn og þá eru hjólin tekin fram. Börn eru ekki með sömu skynjun á hraða og við fullorðnir og því skal alltaf hafa varann á þegar verið er að koma úr botnlöngum og inn á vegi. Ég vil ekki hugsa hvað hefði getað gerst ef hún hefði ekki verið með hjálm, svo enn og aftur verið sýnileg, notið hjálm og farið varlega 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing