Lauren er 21 árs stelpa frá San Diego í Bandaríkjunum. Hún hefur vakið heimsathygli með Tinder reikningnum sínum. Fyrir nokkrum árum lenti hún í slysi á vespunni sinni og missti aðra höndina.
Lauren hefur heldur betur húmor fyrir sjálfum sér og skrifar á Tinder að hún starfi sem „Armsdealer“ (brandarinn er fyndnari á ensku en íslensku) að hún sé með andlit upp á 10, líkama upp á 9, persónuleika upp á 20 og 1/2 hendur.
Þessi frábæri húmor er búinn að vekja athygli hjá strákunum og þeir eru svo gjörsamlega að missa sig yfir henni.





