Conor McGregor talar mikið um það hvað hann sé með mikinn metnað og hvað hann leggur mikið upp úr æfingum. Enda hefur það skilað honum frábærum árangri þar sem hann er eini maðurinn í UFC sem hefur haldið tveimur beltum á sama tíma.
Kevin Hart er mögulega stærsti uppistandari allra tíma. Hann er með 51 milljón fylgjenda á Instagram og eini uppistandarinn sem hefur fengið sína eigin línu af íþróttaskóm. Þeir sem eru með Kevin á Instagram ættu að sjá að hann er brjálaðslega metnaðarfullur og í rugluðu formi.
Hér er myndband sem sýnir Conor og Kevin í erfiðum æfingum.