Hún Inga María Eyjólfsdóttir var að hjóla í Kaupamannahöfn þegar að bíll keyrði á hana og hún slasaðist lífshættulega.
Það stefnir í langa batagöngu og Andri Þór frændi hennar vonar að fólk geti hjálpað Ingu og fjölskyldu hennar á þessum erfiða tíma.
Þann 14. janúar var frænka mín hún Inga María Eyjólfsdóttir úti að hjóla í Kaupmannahöfn þar sem hún býr þegar ekið var á hana (sjá Link í Comment). Hún slasaðist lífshættulega og hlaut mikla innvortis áverka, heilablæðingu og mörg alvarleg beinbrot Hún var lögð inn á gjörgæsludeild á ríkisspítalanum í Danmörku eftir að hafa gengist undir aðgerð til að stöðva innvortis blæðingar. Baklandið hennar Ingu Maríu er hérna á Íslandi og fyrsta sem fjölskyldan hennar gerði var að fljúga út til hennar og vera til staðar fyrir hana. Mamma hennar Rannveig Vigfúsdóttir er nú hjá dóttur sinni á hverjum einasta degi og hlúir að henni. Þótt mikið hafi þegar unnist er vitað að baráttan hjá Ingu Maríu og fjölskyldu hennar muni taka marga mánuði til viðbótar. Inga María hefur þegar gengist undir fleiri aðgerðir til að laga beinbrot og fleira. Nú er stefnan að Inga María flytjist yfir á annan spítala sem líkja mætti við Grensás hér heima. Móðir hennar mun standa við hlið hennar allan tímann og dveljast í Danmörku á meðan. Eins og allir vita er mjög kostnaðarsamt að halda sér uppi í öðru landi og gisti- og fæðiskostnaður ansi fljótur að telja. Eins og þið vitið sem þekkið þessa yndislegu fjölskyldu hafa þau gengið í gegn um ansi erfiða tíma á síðustu árum. Mín ósk er sú að Rannveig geti stutt við dóttur sína og veitt henni styrk til að berjast í áttina að bata án þess að fjárhagsáhyggjur skyggi þar á. Mér þætti því óendanlega vænt um ef þið gætuð lagt þessari fjölskyldu lið á þeirra erfiðu tímum svo þau geti einbeit sér að bata Ingu Maríu.
Andri frændi.
Það er hægt að leggja inn á bróðir hennar Ingu Maríu til að veita þeim stuðning.
Vigfús Almar
Banki: 544 – 26 – 62406
Kt: 240688-2559