Guðmundur Felix Grétarsson, eða Felix eins og hann er kallaður, missti báða handleggi í vinnuslysi árið 1998.
Nú, 20 árum síðar, þá eru nýjar hendur innan seilingar fyrir Felix og stutt í að hann fái heitustu ósk sína uppfyllta – að geta faðmað dætur sínar.
Heimildarmyndin „Nýjar Hendur – Innan Seilingar“ fer yfir ótrúlegu söguna hans og þá kraftaverka skurðaðgerð sem bíður hans rétt handan við hornið.
Heimildarmyndin „Nýjar Hendur – Innan Seilingar“ verður sýnd í Bíó Paradís frá og með fimmtudeginum 30 ágúst. Ferlið fram að þessu, sorgir og sigrar….aðalega sigrar samt.
Ómissandi tækifæri til að sjá sturtuatriði og fleira í þeim dúr.
Kveðja
Felix de Milo 