Íslenskur maður bregst við því að dóttir hans kom út sem trans strákur – Bjó til uppskriftina að réttum viðbrögðum í svona málum!

Hann Helgi Jóhannesson var að bregðast við því á Facebook að dóttir hans kom út sem trans strákur. 

Helgi skrifaði þennan fallega status og við leyfum okkur að segja með þessu hafi hann búið til uppskriftina að réttum viðbrögðum í svona málum:

Auglýsing


Ágætu Facebook vinir.

Ég tel rétt að deila því hér að Jóhanna Lilja dóttir okkar er komin út sem trans strákur. Hún mun taka upp nafnið Sigurður Jóhann. Jóhann verður mest notað en Sigurðar nafnið er eftir móðurafa hans sem var einstaklega ljúfur og víðsýnn maður.

Þessi tíðindi, þó stór séu, þurfa ekki að koma okkur sem best þekkjum til á óvart. Jóhanna var ekki há í loftinu þegar hún harðneitaði öllum fötum sem flokkast sem stelpuföt og varð strax flottur gaur og fór sínar leiðir. Þetta er allt saman rökrétt framhald.

Við búum vonandi núna í það opnu og umburðarlyndu þjóðfélagi að þær áskoranir sem nú mæta Jóhanni verði eitthvað auðveldari viðureignar en áður var. Eitt get ég þó sagt frá rótum hjarta míns: Af öllu því fólki sem ég hef kynnst á minni ævi er það ekki nokkur manneskja sem ég treysti betur til að höndla það allt saman en einmitt Jóhanni sjálfum.

Elsku Jóhann. Þú veist að við elskum þig öll nákvæmlega eins og þú ert. Við hlökkum öll til að fylgjast með þér og standa við bakið á þér og systkinum þínum í framtíðinni og vera til staðar fyrir ykkur öll. Ég gæfi aleiguna fyrir aðeins brotabrot af þeim kjarki og sjálfstæði sem þú hefur til að bera.

Við erum ekki einir um að dást að viðbrögðum Helga, heldur skrifaði Bergþór Pálsson þetta þegar hann sá færsluna.


Hann Helgi birti einhverja fallegustu færslu sem ég hef séð á Facebook.

Hugrökk, einlæg, skynsamleg og full af kærleika, en um leið svo blátt áfram og laus við tilfinningasemi hreyfði hún þannig við mér að ég varð meyr í brjóstinu.

Það er hægt að gleðjast yfir því hvað íslensku samfélagi hefur aukist umburðarlyndi á undanförnum áratugum. Bravó frábæra og samheldna fjölskylda!

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing