Því miður ganga ekki öll sambönd upp og stundum enda þau í leiðindum. Það er misjafnt hvernig fólk tæklar svona erfiðleika, sumir hrista þetta af sér og halda áfram á meðan aðrir láta gamlar kærustur eða gamla kærasta hafa áhrif á sig í langan tíma.
Á eirikurjonsson.is er mynd sem Þórir Grétar tók af Range Rover. Þessi Range Rover er með einkanúmerið IH8MYX sem stendur fyrir „I hate my ex“ eða „ég hata fyrrverandi“.