Þann 16. febrúar gáfu tónlistarmennirnir Ivan Mendez og Stefán Elí frá sér nýtt lag, sannkallaða poppsprengju.
Lagið er það fyrsta sem þeir gefa frá sér í sameiningu en þeir hafa undanfarið verið iðnir í að gefa út nýja tónlist. Ivan spilar og syngur með hljómsveit sinni „Gringlo“ en hefur nýlega einning gefið út solo efni undir eiginn nafni . Stefán Elí pródúserar og gefur út hip-hop tónlist undir eiginn nafni. Hann gaf út sitt fyrsta lag fyrir rúmlega ári og hefur gefið út mikið þrátt fyrir stuttan tíma í bransanum.
Lagið sömdu þeir og útsettu í sameiningu en kveikjan að laginu kom frá Ivani þegar hann sat við gamlan Yamaha skemmtara.
,,Takkarnir eiginlega festust inni þanning ég sat uppi með eitthvað statískt orgel sound. Það var eitthvað við hjóðið sem kveikti á hugmynd svo ég fór að vinna með hljómasamsetningar og melódíur. Ég tók síðan upp myndband á símann minn og nokkru seinna sýndi ég Stefáni það. Nokkrum klukkutímum síðar var hann búinn að senda mér fyrsta uppkastið af laginu. Ég var mjög impressed á þessari skilvirkni, enda er Stefán einn duglegasti artisti sem ég hef unnið með“. – Ivan
,,Mér þótti þetta stutta hljóðbrot sem Ivan spilaði fyrir mig svo ótrúlega grípandi að mér bara fannst ég verða að þróa hugmyndina svo hún yrði eitthvað stærra.“ – Stefán
Lagið er ansi frábrugðið því sem Stefán og Ivan hafa gefið frá sér hingað til. Enda leggja þeir, að eigin sögn, áherslu á það að skapa tónlist saman án fyrirframákveðinna hugmynda um útkomu.
Reikna má með meira efni frá þeim á næstunni, bæði sameiginlegu og í sitthvoru lagi. Stefán stefnir á að gefa frá sér plötu í byrjun apríl og Ivan er sjálfur að vinna að solo plötu. Ivan er einnig á kafi í að taka upp með hljómsveitinni Gringlo og er planið að gefa út plötu með vorinu.