Jaðarsport hjónin Jónas Stefánsson (Jonni) og Arna Benný eru alls ekki byrjendur þegar kemur að því að hafa gaman. Jonni er vel þekktur í jaðarsportinu þar sem hann er einn virkasti jaðaríþróttamaður sem við Íslendingar eigum. Jonni er reyndur á snjósleða, hjólabretti, fjallahjóli, skíðum, snjóbretti, þó fleira sé nefnt.
Jonni og Arna hafa verið saman í tíu ár og giftu sig síðasta sumar. Þau fóru í rosalega skemmtilega og spennandi brúðkaupsferð til Kosta Ríka. Jonni fór aðeins á undan og keppti á fjallahjóli. Svo kom Arna og þau léku sér saman í tíu daga. Það er alveg á hreinu að það var ekki ein leiðinleg mínúta í þessari tíu daga ferð hjá þeim og þessar myndir sanna það.
„Arna Benný kom út og þá tóku við 10 dagar í brúðkaupsferð þar sem við surfuðum, hjóluðum og skoðuðum ýmislegt sem Costa Rica hefur uppá að bjóða. Alger paradís þetta land. Frumskógar og svakaleg fjöll með öpum og allskyns villtum dýrum. Svakalega fallegar strendur með heimsklassa öldum, eldfjöll, heitar laugar, fossar og margt fleira!“ – Jonni
Þetta er ferð sem þau eiga aldrei eftir að gleyma. Og fyrir þá sem vilja fylgjast með þessum snillingum þá er hægt að gera það á Instagram.
Jonni – jonasstefans
Arna – arnabenny