Kara Gautadóttir er grjóthörð stelpa frá Ólafsfirði. Hún keppir í kraftlyftingum fyrir Kraftlyftingafélag Akureyrar.
Hún keppti á EM í kraftlyftingum sem fram fór á Malaga. Kara lyfti samanlagt 362,5 kg í -57 flokki unglinga. Hún lyfti mest 145 kg í hnébeygju, 80 kg í bekkpressu og 137,5 kg í réttstöðulyftu.
Ótrúleg þessi stelpa og við óskum henni til hamingju með árangurinn. Hér er hægt að sjá allar lyfturnar hennar.