Konan hans Sigvalda bað hann að HENDA í vélina – Nú getur hann það ekki lengur! – MYNDBAND

Við sögðum frá því á sínum tíma þegar að Berglind Kristjánsdóttir bað manninn sinn, hann Sigvalda Arnar Lárusson, um að henda í vélina – sem hann að sjálfsögðu gerði og tók upp á myndband, sem þið sjáið hér fyrir neðan.

Auglýsing

„Afar einkennileg bón að biðja mann um að henda í þvottavélina. En hvað gerir maður ekki fyrir þessa elsku?“

En nú getur hann það ekki lengur – eins og við sjáum á þessum sorgarstatus sem hann var að birta:

Sorgartíðindi
Elskuleg samferðarkona mín til 23 ára, Frú Siemens, gaf upp öndina mjög óvænt í hádeginu. Þetta kom mér mjög á óvart þar sem við vorum að vinna saman í morgun og hún bar þess ekki merki um að þetta yrði síðasta skiptið okkar saman Á öllum þessum 23 árum varð hún aldrei lasin og reyndist mér gríðarlega vel.
En engin veit sína æfina fyrr en öll er. Verst þykir mér þó að Begga hafi ekki náð að “kveðja” hana en þær voru miklar vinkonur. Nú hefst semsagt leit að nýrri elsku handa Beggunni.
Blóm og kransar afþakkaðir og þeim sem vilja minnast hennar er bent á þvottavélasjóð Silla

Spurning hvort að aðferðafræði hans hafi nokkuð átt einhvern þátt í þessu öllu saman…?

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing