Krakkar í HAGASKÓLA fara í Hólavallagarð til að fá sér í haus – „Frá því um áramótin síðustu hefur þetta margfaldast“

Heimir Björn Janusarson er umsjónarmaður með Hólavallagarði og hann skrifaði þessa færslu í Facebook hópinn Vesturbærinn því hann hefur miklar áhyggjur af þróun mála.

Auglýsing

Hann hvetur foreldra til að ræða við börnin sín því að grasneysla í garðinum er í búin að aukast svo mikið – og vonar líka að Hagaskóli geti hjálpað til. 

Vonandi sjá sem flestir foreldrar í Vesturbænum færsluna hans – því að þetta er ekki góð þróun.

Ágætu nágrannar.
Sem umsjónarmaður með Hólavallagarði, gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu, þá hefur í gegnum tíðina alltaf verið eitthvað um grasneyslu í garðinum og ég fundið ummerki um slíka neyslu. En nú bregður svo við að frá því um áramótin síðustu hefur þetta margfaldast.
Síðustu daga hefur algjörlega keyrt um þverbak. Ekki bara að umbúðir eru út um allt heldur eru ungir drengir c.a. 15 ára farnir að mæta í garðinn fyrir hádegið og „fá sér í haus“ og finnast það bara allt í lagi. Skora ég á foreldra að setjast niður með börnum sínum og aðeins ræða þessi mál. Ég er viss um að Hagaskóli getur líka hjálpað til.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing