Létu Sigurð heyra það út af LÖGBANNINU á ungmennaheimilinu – En hann hefur ekkert með málið að gera!

Sigurður Rúnarsson hefur ekki fengið fallegar kveðjur frá fólki í kjölfarið á því að lögbann fékkst á heimili fyrir ungmenni í vanda sem átti að vera í Norðlingaholti. 

Það væri svo sem ekki óeðlilegt miðað við það sem gerist og gengur í okkar þjóðfélagi þessa dagana – nema að Sigurður hefur ekkert með málið að gera:

Auglýsing

Yfirlýsing vegna lögbannskröfu íbúa í Norðlingaholti.

Undirritaður sat í stjórn íbúasamtaka Norðlingaholts frá 2009 sem varamaður, varaformaður og síðast formaður stjórnar til ársins 2012.

Nýr formaður og stjórn hefur látið undir höfuð leggjast að uppfæra skráningu félagsins allt frá því ári og til dagsins í dag.

Hvort aðalfundur hefur verið haldin eða ekki síðan þá er ókunnugt um en ljóst er að þegar ég umdirritaður hætti setu í stjórninni að þá tók þáverandi varaformaður, Carl Jóhann Gränz við stöðu formanns.

Það að undirritaður dragist nú, í desember 2018, inn í umræðu um lögbannskröfu íbúa í Norðlingaholti vegna „heim­ili fyr­ir ung­menni í vanda“ er því með öllu ómálefnaleg.

Umræðan á samfélagsmiðlum er bæði orðljót og særandi auk þess sem persónulegar upplýsingar sem heimilisföng ótengds fólks eru birt. Þessi skrif og birtingar eru með öllu óviðeiganfi og ekki minnst lítilsækkandi fyrir þá sem þar eiga í hlut. Ég hvet viðeigandi til að fjarlægja ummæli sín og þær persónuupplýsingar sem þar koma fram

Um leið vill éf minna á að ég á börn og barnsmóður í Norðlingaholti sem hafa ekkert til saka unnið og eiga nú á hættu að verða fyrir umtali og gagnrýni sem þau eiga ekki skilið.

Ég hef ég verið búsettur og starfandi í Noregi frá janúar 2014 og engin tengsl haft við íbúasamtök Norðlingaholts annarsvegar og lögbannskröfuna hinsvegar.

Þeir, sem óska nánari útlistingu kröfunnar, ættu því að beina spurningum og gagnrýni sinni að þeim sem setja nöfn sín við lögbannskröfuna sem send var til sýslumanns.

Þar að auki skora ég á núverandi stjórn íbúasamtaka Norðlingaholts að uppfæra skráningu félagsins hjá fyrirtækjaskrá skattstjóra, eins og ég hef ítrekað farið fram á síðustu ár en án árangurs.

Virðingafyllst,
Sigurður Rúnarsson.

Ósló 7. desember 2018

https://m.facebook.com/story.php?story_fbid=10217011898830845&id=1268413651

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing