Hann Paul Fentz frá þýskalandi var að keppa á vetrarólympíuleikunum í listskautadansi og ákvað að dansa við Game of Thrones lagið og klæða sig eins og Jaime Lannister.

Þetta var talið eitt magnaðasta atriðið, þrátt fyrir að hann hafi ekki unnið medalíu. Listræna tjáningin var allavegana svakaleg.

Hann var í mögnuðum búning með gullnu hendina og rauðan klút til að tákna þar sem að hendin var skorin af.
![]()
Ætli Jaime væri sáttur við þetta allt saman?

Ég býst ekki við því…
