Hún var á vakt þegar illa lyktandi og vannært barn kom á spítalann – og hún gat ekki hugsað sér annað en að gefa því að borða.

Hún heitir Celeste Ayala og er lögreglukona í Berisso í Argentínu. Þegar að barnið kom á spítalann þá vissi hún hvað þurfti að gera – svo hún spurði hjúkrunarkonurnar hvort það væri í lagi og gaf því svo að borða.

Það var nefnilega allt of mikið að gera hjá öllum á spítalanum og það var enginn að sinna greyið barninu – svo eftir að hafa talað við starfsfólkið á spítalanum þá sá hún bara um það.

Barnið grét og grét þegar það kom á spítalann og til að hugga barnið þá tók hún það upp og hélt á því. Barnið leitaði sífellt að brjóstinu hennar þegar hún gerði það svo þess vegna tók hún ákvörðunina. Eftir það róaðist barnið niður og náði svo að sofna.

Celeste hefur fengið mikið hrós fyrir það sem hún gerði og fólk alls staðar í heiminum er að senda henni kveðjur og ást.