Leikkonan Amanda Bynes var mjög vinsæl í Hollywood í kringum 2005 og flestir muna eftir henni í myndinni „She’s The Man“. En ferillinn hennar er ekki búinn að vera glæsilegur síðustu ár þar sem leikkonan fór út í eiturlyf og mikla drykkju.
Amanda var núna ekkert búin að sjást í 3 mánuði en papparassar rákust á hana í verslunarmiðstöð. Aðdáendur hennar eiga erfitt með að trúa því að þetta sé hún enda er hún búin að breytast rosalega síðustu ár. En gerist það ekki með tímanum?


