María Mjöll sendi Justin Bieber NÍU ÞÚSUND tíst þar til einn daginn kom „Followið“ sem hún þráði!

Hin 22 ára gamla María Mjöll Björnsdóttir,var eitt sinn þekktasti Justin Bieber aðdáandi landsins – en hún fór í stutt spjall við Stundina.

Þar kom meðal annars fram að hún hefði sent níu þúsund tíst á Justin Bieber – sem byrjaði svo að fylgja henni til baka og óróa inni í Bieber samfélaginu – eftir að hún fór í viðtal við Visir.is

Auglýsing

Hér er það sem hún sagði í viðtali við Stundina.

„Þegar ég var í 10. bekk varð ég þvílíkur Justin Bieber aðdáandi og bjó mér til Twitter aðgang í þeim eina tilgangi að sinna því áhugamáli. Síðan eyddi ég hálfu ári í að senda honum endalaus skilaboð í gegnum Twitter, eins og ekkert væri eðlilegra. Ég held ég hafi verið búin að senda svona níu þúsund Tweet til hans þegar hann síðan byrjaði að followa mig til baka. Um hálfu ári síðar var ég beðin um að segja frá aðdáun minni í viðtali á Vísi. Eftir að ég kom fram í viðtalinu varð mikill óróleiki innan Justin Bieber samfélagsins á Íslandi, en það var félagsskapur stelpna sem hittust reglulega, horfðu á myndina hans og töluðu um hann. Ég var inni í þessari grúppu og mér var hent út eftir þetta viðtal. Mögulega urðu þær fúlar yfir því að ég hefði verið tekin í viðtal, því þær vissu að ég hafði ekki verið mjög virkur aðdáandi mánuðina áður. En eftir þetta hætti ég eiginlega að fylgjast með Justin Bieber og fór í staðinn að fylgjast mikið með One Direction, en það var aðeins heilbrigðari aðdáun. Nýlega fann ég gamla skólatösku frá mömmu og hún var öll útkrotuð með nafninu hans David Bowie, þannig ég fæ þessa stjörnudýrkun greinilega frá henni.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing