Melissa Baizen er bara venjuleg tveggja barna móðir frá Bandaríkjunum. Hún er mjög reglulega stoppuð úti og fólk biður um eiginhandaráritanir og að fá að taka myndir með henni. Ástæðan fyrir því er að fólk heldur að hún sé Angelina Jolie.
Melissa er orðin rosalega vön því að fólk haldi þetta. Eiginmaður hennar er mjög ánægður að fólk haldi að hún sé Joline þar sem hún er ein kynþokkafyllsta kona í heimi, þó hann sé ekkert rosalega sáttur með þessa athygli sem hún fær frá karlmönnum.
„Fólk stoppar mig mjög oft þegar ég er úti að labba og svo er líka fólk sem þorir því ekki en starir bara á mig í staðinn. Mér finnst þetta frábært þar sem Angelina er alltaf búin að vera fyrirmynd mín“. – Melissa
„Þetta er búið að hjálpa sjálfstraustinu mínu verulega því Angelina Jolie er rosalega flott stjarna. Ég elska bíómyndirnar hennar og hvað hún gerir dags daglega. Við erum kannski ekki með sama persónuleika en mér finnst samt alltaf frábært þegar fólk kemur til mín og heldur að ég sé hún“. – Melissa
Spurning hvort hún geti grætt eitthvað á þessu í lífinu en Melissa mætir auðvitað alltaf sem Angelina Jolie karakter þegar hún fer í búningapartý.