Ný rannsókn segir að kynhneigð sé öll á rófi og að við verðum öll kynferðislega æst við bæði karlmenn og konur.

Ritch Savin-Williams er vísindamaður við Cornell og hann segir að sífellt fleiri karlmenn ættu að vera skilgreindir sem ,,að mestu leiti gagnkynhneigðir“ (e. mostly straight).

Kenningu hans byggir hann á rannsóknum sínum á bæði konum og körlum, sem sýna útvíkkun á augunum bæði þegar þau sjá karlmenn og konur, sama hvernig þau skilgreina sig kynferðislega.

Ritch segir að allar hans rannsóknir inn í málið hafi sýnt að það sé enginn gagnkynhneigður eða samkynhneigður – heldur erum við öll á einhverju rófi.

Hvað segið þið – finnst ykkur eitthvað varið í niðurstöðurnar úr rannsókninni hans Ritch?