Ólöf Guðrún og vinkonur hennar fóru út um miðja nótt til að breyta Reykjavík eins og við þekkjum hana.
Tilgangurinn var einfaldur. Þær ákváðu að breyta öllum götum sem voru með karla nöfnum – og gefa þeim kvennanöfn.
Þar fæddist meðal annars Frökenargata og fleiri góðar – Ólöf birti færslu um þetta á Twitter – en sem best er vitað hafa þessi nöfn þó ekki haldist. Tilraunin engu að síður góð!
F. 7 árum framkvæmdu 3 vinkonur mikið pönk í skjóli (ís)kaldrar vetrarnætur- skiptum öllum götum m. karlheiti y. í kvennaheiti v. #kvennafrí pic.twitter.com/vdSe0qWYdD
— Ólöf Hugrún (@olofhugrun) October 24, 2017


