Hjón í Engimýrinni í Garðabæ þurftu að vera viss um að þau væru ekki enn að dreyma þegar þau vöknuðu upp við viðvörunarkerfið sitt – martröðin var orðin að veruleika: Það var þjófur í húsinu.
![]()
Hjónin vilja vera nafnlaus en þau vildu koma á framfæri að öryggiskerfið þeirra hefði bjargað innbúinu þeirra frá höndum þjófsins, en hann komst ekki í burtu með neitt eftir að þau ráku hann á brott.

Þau sáu að hreyfiskynjarinn í bílskúrnum hafði farið í gang. Þau voru ekki með myndvél þar en sögðu að skynjarinn hefði svo sannarlega gert sitt gagn.

Þau voru ennþá berfætt á náttföttunum einum saman þegar að þau fóru út um útidyrnar og sáu að bílskúrshurðin var opin. Þau horfðu stjörf á hurðina…og svo skaust þjófurinn út um hana og hljóp í burtu.
Þau öskruðu á eftir honum en hann var fljótur í burtu. Hann hélt samt áfram að fylgjast með húsinu eftir á og þau sáu eftirminnilegu svörtu úlpuna hans með hvítu röndinni í smá fjarlægð. Þegar lögreglan kom á svæðið þá var hann horfinn.
Það vantar ekki innbrotin á Íslandi þessa dagana. Við vonum að þið hafið góða leið til að verja heimilið ykkar, veri það innbrotskerfi eða hvað annað.