Réðst á Gígju á leiðinni HEIM úr bænum – „Mér finnst rétt að vara við honum“

Hún Gígja Skúladóttir setti þessa færslu í opna Facebook hópinn Vesturbærinn því hún vildi vara fólk við.

Það réðst nefnilega maður á hana þegar hún var á leiðinni heim úr bænum á varasömum stað.

Klukkan var orðið margt og það orðið dimmt þegar ég geng heim úr miðbænum í nótt. Ég er að fara framhjá kirkjugarðinum í Vesturbænum meðfram Hringbrautinni þegar ég mæti manni sem heilsar mér, gengur upp að mér og ræðst svo á mig. Ég hugsa bara að ég trúi ekki að þetta sé að gerast, öskra en það er engin nálægt, næ að lokum að bíta hann af mér.
Eftir á læðist sá grunur að mér að hann hafi setið fyrir mér/konum, af því að staðsetngin er mjög hentug fyrir svona lagað, þar sem göngustígurinn er talsvert frá allri umferð. Þetta var Íslendingur um fertugt ca 185 cm á hæð og dökkhærður. Mér finnst rétt að vara við honum.

Auglýsing

læk

Instagram