Reykjanesskaginn gæti endað sem eitt SAMFELLT orkuvinnslusvæði – „Hvað var fólkið, sem ákvað þetta, eiginlega að hugsa?“

Hann Ellert Grétarsson endaði erindi sitt hjá Félagi leiðsögumanna á því að sýna stöðu orkuvinnslumála á Reykjanesskaganum og segja frá áætlunum á þeim slóðum.

Það voru ansi margir hissa á þessu og eftir að hafa lesið færsluna hans þá spyr maður sig bara eins og Ellert: „Hvað var fólkið, sem ákvað þetta, eiginlega að hugsa?“

Auglýsing

Í kvöld flutti ég erindi á bókakvöldi hjá Félagi leiðsögumanna. Þar kynnti ég nýútkomna ljósmyndabók mína um Reykjanesskagann í máli og myndum. Ég lauk erindinu með því að bregða upp á skjáinn þessu korti sem sýnir stöðu Reykjanesskagans í 3ja áfanga Rammaáætlunar. Svörtu punktarnir eru svæði sem þegar hafa verið virkjuð, rauðu punktarnir svæði sem stendur til að virkja (orkunýtingarflokkur) og gulu punktarnir eru svæði í biðflokki. Miðað við fyrri reynslu má telja nær öruggt að þau svæði fari líka í orkunýtingarflokkinn. Grænu punktarnir þrír eru svæði í verndarflokki. Aðeins þrjú af nítján. En auðvitað vilja orkufyrirtækin fá þau svæði líka.

Viðstöddum var nokkuð brugðið þegar ég útskýrði kortið fyrir þeim. Þetta þýðir nefnilega að ef villtustu draumar orkufyrirtækjanna rætast, þá verður Reykjanesskaginn nánast eitt samfellt orkuvinnslusvæði frá Reykjanestá að Þingvallavatni með allri þeirri náttúrueyðileggingu sem fylgir. Hvernig stendur á því að svæðin innan Reykjanesfólkvangs eru komin í orkunýtingarflokk? Hvað var fólkið, sem ákvað þetta, eiginlega að hugsa? Og af hverju þarf að virkja allt sem hægt er að virkja í landi sem á heimsmet í raforkuframleiðslu miðað við höfðatölu? Noregur, sem er í öðru sæti, framleiðir innan við helming þess sem Ísland framleiðir! Er ekki eitthvað skakkt við þetta? Erum við kannski að tala um sóun en ekki nýtingu?

Þessi orkumálaumræða er komin út í tóma vitleysu. Í landi sem á heimsmet í raforkuframleiðsu tala orkumálastjóri og forsvarmenn orkufyrirtækja um að virkja þurfi meira. Að öðrum kosti muni það hamla uppbyggingu atvinnulífs í landinu. Á sama tíma og menn tala um yfirvofandi orkuskort ætla þeir að flytja orkuna til annarra landa með sæstreng! Þetta er svona eins í þriðjaheims ríki þar sem almenningur þarf að þola matarskort vegna þess að stærsti hluti matvælauppskerunnar er fluttur úr landi! Þetta er svo algjörlega glórulaust. Sumir virðast varla kunna fótum sínum forráð fyrir skammsýni og græðgi.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing