Rúnar óskar fötluðum Íslendingum til hamingju með daginn – Nú VERÐA sveitafélögin að taka við umsóknunum!

Hann Rúnar Björn óskar fötluðu fólki á Íslandi til hamingju með daginn – því að frá og með deginum í dag verða sveitafélög landsins að taka við umsóknum um NPA.

Auglýsing

Ég óska fötluðu fólki á Íslandi til hamingju með daginn. Í dag eigum við rétt á notendastýrðri persónulegri aðstoð.

Það þýðir að frá og með deginum í dag verða sveitarfélög landsins að taka við umsóknum og taka þær til efnislegrar meðferðar. Hingað til hefur verið þekkt vandamál að sveitarfélög hafa beinlínis meinað fólki að sækja um NPA.

Ég vil hvetja alla sem hafa áhuga á NPA og telja að sú þjónusta geti hentað sér til þess að hafa samband við sveitarfélag sitt og láta vilja sinn í ljós. Helst í dag.

Ekki hika einn dag, sendu tölvupóst eða bréf eða mættu á staðinn. Láttu vita af þér og sæktu rétt þinn.

Ef sveitarfélagið svarar þér á þann veg að það sé ekki hægt að sækja um NPA þá átt þú rétt á að fá það skriflegt og svo getur þú haft samband við Öryrkjabandalag íslands eða NPA miðstöðina svo við getum brugðist við.

Það er rosalega mikilvægt að umsóknir áhugasamra komi fram sem fyrst og farið verði að vinna í þeim.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing