Sannkölluð HETJA hér á Íslandi – Þormar Melsted bjargaði mannslífum í Sundhöllinni! – MYNDIR

Þessi höfðingi og snillingur hér heitir Þormar Melsted. Það er fólk á Íslandi á lífi í dag þökk sé honum. Þormar var í Sundhöllinni þegar hann tók eftir því að það stefndi allt í hörmungar.

Auglýsing

Þormar er fastagestur í Sundhöllinni. Hann varð var við að loftið í glænýju gufunni var eitthvað skrýtið. Það voru 10 manns inn í gufubaðinu þegar hann fattaði skyndilega að loftið í gufunni var að fara hrynja ofan á þau.

Þormar rauk til, opnaði dyrnar eins harkalega og hann gat og öskraði: „Out, out, out!“ – því hann hafði tekið eftir því að hluti af fólkinu var útlenskt. Sekúndum eftir að tíu sundlaugagestirnir voru komnir út þá hrundu tvö til þrjú hundruð kíló af loftflísum, í einu lagi, á gólfið á gufunni.

Það má með sönnu segja að þetta fólk sé á lífi í dag þökk sé athyglisgáfum Þormars og fljótum viðbrögðum.

Vel gert Þormar, vel gert!

Myndir fengnar af heimasíðu Sundhallarinnar og Facebook.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing