Sigurður lýsti dramatískum andartökum þegar hann var nærri dáinn úr ofneyslu amfetamíns

Sigurður Rósant er 22 ára gamall og hefur verið edrú í tæplega tvö ár. Hann hóf neyslu 12 ára – með fikti á kannabis. Fjórtán ára gamall var hann byrjaður í harðari efnum eins og spítti og e-pillum, en einnig róandi lyfjum.

„Ég er búinn að kveðja fimm vini mína síðasta árið úr ofneyslu. Síðan fleiri ef við teljum kunningja mína með.“ segir Sigurður í samtali við RÚV.

Auglýsing

Hann segir að aðgengi að þessum heimi sé allt of auðvelt. Vinir sem þekkja vin sem geti reddað eiturlyfjum.

„Það er svo auðvelt að komast í þetta. Þetta er bara á Facebook.“

Sigurður var inn og út um meðferðum öll sín unglingsár. Fjölskyldan hans var alltaf kvíðin um framhaldið. Hvernig færi með hann. Undir lok neyslunnar fór andinn í þessu að breytast hjá Sigurði.

„Ég var ekki í þessu lengur til að hafa gaman. Ég var bara að reyna að forðast fráhvörf.“

Í sinni hörðustu neyslu þá reykti hann morfín ofan á allt annað. Svo kom reynsla sem var nærri genginn af honum dauðum. Það skapaði honum mjög skýra sýn á líf sitt. Hvort hann vildi lifa áfram eða ekki.

Hann hafði tekið of stóran skammt af amfetamíni – og fannst hjartað í sér vera að springa. Hann kvartaði við vini sína um að hann væri að „óverdósa“ – en þeir sögðu að það væri ekkert að honum.

„Þá sá ég að þetta voru ekki vinir mínir. Ég endaði bara á efstu hæð í íbúðinni. Hjartað mitt sló svo hratt. Það er sturta á efstu hæðinni og ég var bara með sturtuhausinn á mér og ég sagði Góð Guð plís ekki taka mig. Ekki taka mig.“

Sigurður fór þetta kvöld upp á sjúkrahúsi með 155 í púls, orðinn blár á brjóstkassanum og endaði á að vera þar í fjóra daga. Mjög heppinn að hafa lifað af.

Hann kljáist enn við afleiðingar eftir þetta atvik – hjartað getur flökt og slegið óreglulega – og má hann bara borða hollan mat og stunda heilbrigðan lífsstíl – til að halda sér góðum.

Neyslan er orðin honum ljós núna – þegar hann horfir á vini sína sem halda áfram í henni. Þá sem hökta áfram – og hina sem deyja.

„Þú ert alltaf að ljúga að sjálfum þér að þér þetta þykist næs. Þér líður alltaf ömurlega. Öllum þessum strákum. Öllum þessum vinum mínum. Þeim líður bara ömurlega. Sama hvað þeir segja.“

Sigurður er nýbúinn að kveðja vin sem dó úr ofneyslu – og trúir því varla enn að hann sé farinn. Og það var svo stutt í að hann hefði endað nákvæmlega eins sjálfur …

Harður heimur sem hann óskar engum þess að lenda í …

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing