Hann Simmi Vill var að setja þessa færslu inn á Facebook þar sem hann lætur fyrirtækjaeigendur heyra það eftir það sem Kveikur sýndi okkur öllum.
Hvernig stendur á því að það séu fyrirtækjaeigendur og rekendur hér á landi sem hafa það í sér að misnota þjáningar og aðstöðu annara einstaklinga til þess að græða meiri pening? Maður hefur heyrt talað um starfsmannaleigur og ekkert veitt því sérstaka athygli. En Kveikur sýndi okkur öllum hversu slæmt þetta er og ég er sannfærður um að þetta hafi verið toppurinn á ísjakanum.
Megi þeir aðilar sem hafa haft af því hagnað að svíkja og níðast á mannréttindum annara finna súrt bragð af öllu því Kampavíni sem þeir skála í um ókomna tíð.
Hvernig geta slíkir einstaklingar horft stoltir í spegil og verið börnum sínum góð fyrirmynd?
Óskiljanlegt með öllu.
