Hún Erla deildi þessari færslu í hópinn „Íbúar í Grafarvogi“ eftir að hún kom að þessum viðbjóði.
Skemmdarvargarnir höfðu ekki bara hent sardínum í gluggana og tæmt Rice Krispies pakka á stéttina – heldur höfðu líka með því lokkað fugla á svæðið sem skitu út um allt:
Ekki beint fallegt að fara á leikskólann Hamra í dag (Vikurhverfi) þar sem einhverjir voru búin að henda sardínum í gluggann og tæma rice krispies pakka á stéttina, einnig var þarna mikið um fuglskít. Ég veit ekki hver á sökina en langaði að deila þessu með ykkur

Ein kommentaði á færsluna og vonaði að fjölskylda viðkomandi aðila sem gerði þetta myndi mögulega sjá þetta og svo átta sig á því að það vantaði sardínudós og Rice Krispies pakka á heimilið.
Við vonum það líka.