Snappari gerir grín að bróður hennar Jóhönnu sem er með Downs – Myndbandið komið aftur í dreifingu

Hún Jóhanna Ösp Einarsdóttir sagði frá því í opnu Facebook færslunni hér fyrir neðan að hún sé eiginlega búin að missa trúna á fólki eftir að snappari ákvað að gera grín að bróður hennar sem er með Downs heilkenni.

Skyldulesning!

Mér er allri lokið núna og eiginlega búin að missa trúna á fólki! Nú í ca 2 ár hefur gengið videó manna á milli af bróður mínum, sem er með downs, þar sem hann situr á veitingastað og er spurður:
,,Sindri hvað er 2×2?”
Hann svarar af bragði:
,,20 ég er ekki þroskaheftur”

Jú þetta er skondið og fyndið og fyrst þegar ég sá þetta þá hló ég í smá stund. Svo varð ég brjáluð, einn af starfsmönnunum hans í búsetunni hafði tekið þetta upp og ætlað að senda í einkaskilaboðum a nokkra vini og það svona líka hressilega undið upp á sig og pósturinn fór út um allt. Ég vona nú að það hafi verið í hugsunarleysi hjá þessum starfsmanni en hvað sem það nú var þá er það gjörsamlega laust við allt sem heitir að vera faglegur starfsmaður að vinna með fólki. Mögulega bara vissi hann ekki betur áður en hann dreifði þessu, mögulega krakki að taka sín fyrstu skref á vinnumarkaðnum. En þá hefur hann ekki fengið nógu góða fræðslu frá yfirmönnum um hvað það er mikilvægt að bera virðingu fyrir skjólstæðingum sínum.

Núna nýverið deildi einn frægur snappari þessu sama myndbandi, ásamt fleirum myndböndum af fólki með fötlun. Það hefur greinilega verið nóg til þess að velja athygli á þessu aftur því nú er myndbandið í fullum gangi nema það er búið að skeyta fyrir aftan það auglýsingu þar sem er lesið upp, íslenskt grænmeti. Jú jú mjög skondið allt saman, og örugglega fullt af fólki sem getur hlegið að þessu en mér er laaaangt frá því að vera skemmt!! Þarna er bróðir minn sem valdi ekki að vera með downs gjörsamlega niðurlægður á samfélagsmiðlunum! Ekki vegna þess að hann sé fáviti (eins og var notað um fatlað fólk á árum áður) heldur vegna þess að við erum einfaldlega ekki lengra komin á Íslandi í dag.

Hann veit að hann er fatlaður, hann veit að hann fær ekki sömu tækifæri í lífinu og aðrir, við vitum að hann er alvöru manneskja með alvöru tilfinningar en hvers vegna erum við sem samfélag ekki komin lengra en það að þetta er bara í lagi?

Ég veit ekkert hver bjó þessa útgàfu til, ég veit ekkert hvað hann heitir sem tók þetta upp fyrst, en það eru ekki endilega þeir sem þessu er beint til, heldur allra hinna sem eru búnir að deila og hlæja á kostnað aðila sem á þetta ekki skilið.

Til ykkar langar mig að segja: SKAMMIST YKKAR!!! Það eru allir hinir sem hafa völdin hvort tiltekin hegðun sé viðurkennd hegðun eða hvort við höfnum svona gríni og förum upp á aðeins hærra plan. Við erum heldur betur búin að fordæma stjórnmálamenn fyrir að gera grín af fötluðum, en miðað við hvað þetta myndband er búið að fara marga hringi á netinu þá er sama fólkið sem fordæmir stjórnmálamenn að taka þátt í álíka gríni! Þannig að ég segi aftur: SKAMMIST YKKAR!!!

Hugsið áður en þið lækið! Og munið að þó þið séuð bara að senda einkaskilaboð á vini ykkar þá er það sem fer á netið alltaf á netinu svo hugsið líka áður en þið deilið.

Af virðingu við bróðir minn ætla ég ekki að deila myndbandinu, en hér eru skjáskot af því.

Auglýsing

læk

Instagram