SVONA losnar þú við leiðinlegt lag af heilanum! – RANNSÓKN

Það er alltof þekkt fyrirbæri að vinsæl lög eru spiluð aftur og aftur og aftur. Þú heyrir sama lagið þegar þú startar bílnum, labbar inn á kaffihús, ferð í ræktina – maður er hvergi öruggur!

Þegar þessi lög eru komin í hausinn virðast þau svo bara vera þar, föst að eilífu!

Hvernig losnar maður við lag af heilanum?

Sumir notast við „hlusta á lagið í heild sinni“ aðferðina og vilja meina að þá hverfi lagið úr hausnum. Margir vilja líka meina að ef þú syngur „Blister In The Sun“ hafi það kraftinn til að eyða hvaða lagi sem er af heilanum.

En vísindamenn við háskólann í Reading í Englandi segjast hafa fundið hina einu sönnu lausn: TYGGJÓ.

Rannsóknir þeirra sýndu fram á að lagið sem situr fast í heilanum ferðast með taugaboðum gegnum eyrun og með því að tyggja tyggjó truflum við þessi taugaboð.

Lausnin er svona einföld – svo ekki klikka á að eiga tyggjó ef þú ert sífellt með leiðinleg lög á heilanum!

Hér má svo hlusta á eitt mesta heilalíms-lag mannkynssögunnar fyrir áhugasama:

Auglýsing

læk

Instagram