Conor McGregor og Floyd Mayweather tóku fjóra blaðamannafundi í síðustu viku á aðeins fjórum dögum. Þeir enduðu í London og það er óhætt að segja að Conor hafi verið með fólkið á sínu bandi.
Eftir blaðamannafundinn í London reyndu Floyd og hans lið að keyra í burtu en brjálaðir stuðningsmenn McGregor voru ekki á því að leyfa honum að fara.