Kim Kardashian er vinsælasta raunveruleikasjarna heims og er hún með 100 milljónir fylgjenda á Instagram. Kim er einnig mjög virk á Snapchat þar sem hún kynnir vörurnar sínar og deilir myndum úr hennar lífi.
En Kim setti mynd á Snapchat sem átti bara að vera saklaus sjálfsmynd en glöggir fylgjendur hennar tóku eftir einu sérstöku í bakrunninum. Þar voru tvær hvítar línur af einhvers konar dufti og margir eru búnir að vera rífast um það á Twitter hvort stjarnan hafi óvart komið upp um sig með eiturlyf eða hvort þetta sé bara sykur á borðinu.
Kim svaraði þessu á Twitter.
