Conor McGregor missti gjörsamlega vitið á fjölmiðladegi UFC 223. Á þessu myndbandi sjáið þið hann tryllast og ráðast á rútu sem UFC bardagamenn voru í:
yoooooo… first time seeing this one. Conor has legit lost his mind. pic.twitter.com/XcLFd2FIMo
— caposa (@Grabaka_Hitman) April 5, 2018
Hann byrjaði daginn á því að storma inn með hóp af vinum sínum – og það sést langar leiðir að það eru vandræði í uppsiglingu:
Conor og félagar enduðu svo með að flýja vettvanginn eftir að þeir höfðu rústað eignum og sært einn bardagamannanna sem átti að keppa á UFC 223:
Það er búið að gefa út handtökuskipun á Conor og þetta lítur ekki vel út fyrir hann.

Í dag var verið að tilkynna að Conor yrði formlega titlalaus og að Khabib Nurmagomedov og Max Holloway munu berjast um léttvigtarbeltið hans.
Hann virðist ekki hafa tekið því vel – en mögulega er önnur útskýring á málinu…