Anna Sigríður Þráinsdóttir virðist hafa hitt naglann á höfuðið þegar hún skrifaði þessa stuttu en áhrifaríku færslu um upplifun hennar á því sem þingmennirnir sögðu á barnum.
Það eru nefnilega ansi margir sammála hennar upplifun.
Mér líður eins og það sem þingmennirnir á barnum sögðu um samstarfskonur sínar hafi þeir sagt um mig, og um allar aðrar konur. Dætur okkar, mæður okkar, systur okkar og vinkonur okkar. Engar afsökunarbeiðnir geta afmáð þessi ummæli.