Það kviknaði í hjá Icewear í Garðabænum í dag. Þetta myndband sýnir okkur eldinn, fyrst hversu vel reykmökkurinn sást frá ólíkum sjónarhornum og hversu massífur hann var – og svo í lokin á myndbandinu sjáum við það sem var að gerast alveg upp við eldinn.
Í húsnæðinu voru um tvö hundruð geymslurými á vegum Geymslna ehf. lager og verslun Icewear og hluti starfsemi Marels. Þetta var stjórtjón.
Það var maður handtekinn vegna brunans en hreinsaður af grun. Ekki er vitað hvað gerðist.