Þórhallur Þórhallsson tók þátt í trendi sem hefur – tja ekki tröllriðið – samfélagsmiðlum en náð smá öldu.
Það er „Kylo Ren áskorunin“ – sem gengur út á að gyrða upp um sig buxurnar – og ná mynd af sér berum að ofan.
Líkt og sjá má, þá neglir Þórhallur þetta – og má ekki á milli sjá hver er Kylo og hver er Þórhallur.