Þórunn er með SKÝR skilaboð til ráðamanna – Hættið að búa til afsakanir! – MYNDIR

Hún Þórunn Ólafsdóttir deildi skilaboðum á Facebook með þessari mynd og það er óhætt að hún er ekki að spara höggin. Þórunn tók myndina þegar hún var í flóttamannabúðunum í Idomeni og skilaboðin á myndinni eru ekki nákvæmlega þau sem maður hefði haldið.

Hvaða skoðun hefur þú á þessu máli?

Auglýsing

„Þessi skilaboð vildi fólkið í flóttamannabúðunum í Idomeni senda heiminum. Myndina tók ég sjálf vorið 2016.
Búðirnar voru að mestu án innviða, án hreinlætisaðstöðu, húsaskjóls og annars sem fólk þarf til að halda heilsu og upplifa öryggi. Þær voru helvíti á jörð. Stundum rigndi yfir þær byssukúlum og táragasi frá makedóníska hernum. Þó voru flestir íbúarnir bara börn.

Á meðan fór fram heimsmeistaramót valdhafa í að búa til afsakanir til að taka við sem fæstum einstaklingum á flótta. Þau voru of trúuð, of brún, of ókunnug, of öðruvísi. Ekki nógu menntuð, ekki nógu siðmenntuð, ekki nógu góð við konur og ekki í nógu mikilli neyð. Ekki nógu lík okkur, yfirburðafólkinu. Best væri að hjálpa þeim bara heima hjá sér, var niðurstaða þeirra sem komust á verðlaunapalla í flokknum skilningsleysi, rasismi og forréttindablinda.
Þau eru hættuleg, þau eru ofbeldisfull, þau eru þetta, þau eru hitt.

Ábyrgðin á þeirra herðum, aldrei okkar. Að vera svona eða hinsegin. Aldrei nóg, alltaf of mikið.

Við höfum aldrei haft afsökun til að taka ekki á móti fólki á flótta. Að sama skapi höfum við heldur enga gilda afsökun til að taka við eins fáum og við höfum gert og hvað þá að úthýsa þeim sem þó hafa náð hér landi og náð andanum um stund.

Á meðan allt þetta gekk á kvittuðu okkar eigin stjórnvöld kerfisbundið undir heimildir til flutninga á sprengjunum sem þau voru að flýja. Eini tilgangur þessara vopna er að drepa fólk. Þau nýtast ekki í neitt annað.
Fólkið sem vill ekki láta drepa sig með þeim flýr, þó ekki komist allir undan. Flýr undan ástandi sem okkar eigin valdhafar eru gerendur í og endar við víggirðingarnar sem eiga að halda þeim í hæfilegri fjarlægð. Þau er þrátt fyrir allt of og um leið ekki nóg.
Við höfðum aldrei neina afsökun og nú er orðið ljóst að við berum meiri ábyrgð á aðstæðum fólks á flótta en flest okkar óraði fyrir.

Skilaboðin á tjaldinu eru til okkar.

Hvað gerum við nú?“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing