Tónlistarmaðurinn Eyvindur Karlsson er vægast sagt ósáttur sáttur við ákvörðun Þjóðleikhússins.
Hérna… Eru Atli Rafn og Stefán Hallur báðir að fara að leika í Þjóðleikhúsinu í vetur? Var #metoo semsagt bara svona tímabundið djók, og nú fara kallarnir aftur að sinna sínu eins og ekkert hafi í skorist?
Eruð þið að grínast? Ætlar Þjóðleikhúsið bara að æla yfir Mee Too og láta eins þetta hafi ekki gerst?
Og er það rétt sem ég heyri að verkið sem Stefán Hallur leikur í heiti Samþykki?
Í hvaða brandara vaknaði ég í morgun?
Og af hverju segir enginn neitt? Erum við bara sammála um að nokkurra mánaða skammarkrókur sé nóg og svo getum við bara gleymt því að einhverjar konur hafi sagt frá leiðindamálum?
Sorrý en ég bara get þetta ekki. Þetta er of mikið djók. Ég bugast. Troðið þessu leikhúsi upp í samþykkið á ykkur.