UFC bardagakonan sem missti saur í miðjum bardaga er búin að fá ansi skemmtileg TILBOÐ!

Þar síðustu helgi mættust þær Felice Herrig og Justine Kish í UFC. Justine tapaði fyrir Felice og lenti í ansi neyðarlegu mómenti rétt undir lokin. Þar var hún að reyna sleppa úr hengingu og lenti í því að missa saur.
Justine var fljót að koma með færslu á Twitter til að sýna að hún hefði bara húmor fyrir þessu.

Auglýsing

„Ég er búin að fá tilboð um styrk frá alls konar fyrirtækjum eins og til dæmis klósettpappírsfyrirtæki. Ég er mikið að spá í að taka tilboðinu til að gera þetta fyndið í staðin fyrir að þetta sé bara vandræðalegt. Mér leið ömurlega þegar þetta gerðist og ég hugsaði strax hvað ég ætti að segja við aðdáendur mína. Inni í búrinu skildi ég ekki hvaðan þessi lykt væri að koma og á einvherjum tímapunkti hugsaði ég hvort þetta væri af dómaranum. Kannski er ekki gáfulegt að blanda hafragraut, eggjum og beikoni við marga lítra af vatni svona rétt fyrir bardaga, haha“. – Justine

Myndaniðurstaða fyrir justine kish

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing