Hún Katrina Hodge vann í Ungfrú England keppninni árið 2009 og ákvað að nota tækifærið til þess að auglýsa ágæti Englandshers, sem hún var hluti af síðan að hún var 17 ára gömul.


Nú er hún þrítug og þrátt fyrir að hafa elskað herinn þegar hún vann keppnina þá hatar hún að vera í hernum núna. Hún er hætt, þrátt fyrir að hafa verið búin að vinna sig upp í liðþjálfa stöðu.

Árið 2005 var hún að sinna herþjónustu í Írak og bjargaði þá lífi 5 hermanna á mjög hetjulegan máta. Hún fékk medalíur, heiðursathafnir og allt sem fylgir slíkum hetjudáðum. En hún losnaði ekki við viðurnefnið sitt þrátt fyrir það: „Combat Barbie“.


Hópur karlmanna í hernum snérist gegn henni eftir að hún fékk medalíurnar. Áreitið var lítið til að byrja með, en jókst og jókst. Hún var kölluð drusla (e. slut) og tík (e. bitch) og alls kyns öðrum fúkyrðum ausið yfir hana. Svo hætti hún að borða í matsalnum eftir að það var kastað fullri kók dós í hausinn þegar hún var þar.

Katrina skilur engan veginn af hverju þessi hópur karlmanna hatar hana svona mikið.

Hópurinn skrifaði eitrað bréf um hana Katrina og hengdi það upp alls staðar í svefnskálum hermannanna. Þegar að liðþjálfinn hennar kallaði hana til sín til að fá að vita hver hefði skrifað bréfið þá sagði hann henni í kjölfarið að hunsa bréfið til að ,,forðast að líta út eins og díva“.

Katrina segir að yfirmenn hennar hafi vitað af ógeðslegu herferðinni gegn henni allan tímann, en að þeir hafi ekki einu sinni gert neitt til að kynna sér málið.

,,Þetta hafa verið 12 ár af helvíti og ég ætla ekki að sætta mig við þetta lengur.“ sagði Katrina þegar hún hætti í hernum.


Nettröllin ætla sér samt ekki að láta hana vera og nýta hvert tækifæri til að hrella hana. Svo að þrátt fyrir að vera hætt í hernum þá virðist sem svo að ógeðslega herferðin sé enn í gangi.