Viltu bragða á Carlsberg eins og hann var bruggaður fyrst árið 1883?
Kol Restaurant boðar til drykklangrar sögustundar þar sem í boði er hinn nýi gamli Carlsberg 1883. Gerðar verða samanburðarrannsóknir á hefðbundnum Carlsberg.
Stefán Pálsson bjór- og sagnfræðingur svalar fróðleiksþorstanum.
Ekki missa af þessu á Kol Restaurant, þann 22. mars kl. 17–19
Skálum saman aftur í tímann!