Vísindamenn staðfesta að karlmenn nota SKEGG til að laða að sér konur!

Undanfarin árin hefur skegg-æði gripið sig um landann. Ólíklegustu menn skarta grön í amstri dagsins. Nú hafa vísindamenn rannsakað fyrirbærið í þaula – og í ljós kemur að þetta snýst allt um að ná sér í konur!

Vísindamenn í Háskólanum í Vestur-Ástralíu komust að því að hinar ýmsu tegundir prímata hafa notað skeggið til að skera sig úr hópnum.

„Skeggið hefur verið vinsælt í gegnum árþúsundin hjá prímötum því þau virðast láta karlinn vera máttugan.“ segir Dr Cyril Grueter sem leiddi rannsóknina. „Skeggið er skraut notað til að ganga í augun á kvenpeningnum.“

Þar höfum við það. Ef þú ert eitthvað einhleypur og langar til að breyta því, hvíldu þá rakvélina um stund!

Auglýsing

læk

Instagram