Deontay Wilder og Tyson Fury mætast í einum stærsta bardaga ársins í boxinu: heimsmeistaratitillinn í þungavigtinni. Þeir félagar eru báðir ósigraðir á sínum ferli, Wilder er með 40 sigra – og 39 rothögg – á meðan Fury er með 27 sigra og 19 rothögg.
Þeir félagar hafa undirbúið þennan bardaga í nokkur ár – og því talsverð spenna búinn að byggjast upp. Hér má sjá blaðamannafund sem fór fram fyrir bardagann. Mikill hiti í mönnum.
Tyson Fury hefur gefið það út að allur hans ágóði af bardaganum muni renna til góðs málefnis.
Samkvæmt Betsson er það Wilder sem er spáð sigurvegara í rimmunni en hann er með stuðulinn 1,59 á móti 2,38 hjá Fury. Sjá nánar HÉR!
Nú er ljóst að annar hvor þeirra mun ekki verða ósigraður að þessum ósköpum loknum. Bardaginn fer fram aðfararnótt sunnudagsins næstkomandi.