Arnór Dan heiðrar minningu föður síns með myndbandi Agent Fresco

Agent Fresco hefur sent frá sér myndband við lagið Wait For Me. Lagið er af plötunni Destrier sem kemur út 7. ágúst. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.

Arnór Dan, söngvari Agent Fresco, heiðrar minningu föður síns með myndbandinu, sem er sett saman úr gömlum upptökum frá fjölskyldu hans. Arnór var tvítugur þegar faðir hans lést úr krabbameini.

Auglýsing

„Það var mjög erfitt að fara í gegnum upptökurnar og heyra rödd föður míns,“ segir Arnór í færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann rekur tilurð myndbandsins.

Ég hef átt erfitt með að skoða þessar upptökur eftir að hann lést en myndbandið gaf mér loksins tilgang. Ég fór því gegnum þetta allt með kökk í hálsinum og bros á vör.

Arnór segist standa í mikilli þakkarskuld við Gísla Þór Brynjólfsson og Kára Jóhannsson sem hjálpuðu til við að klippa myndbandið og setja það saman.

„Þetta myndband er tileinkað fjölskyldu minni. Þau eru búin að sjá útkomuna og lögðu blessun sína yfir það jafnvel þótt það sé gríðarlega persónulegt og innihaldi myndefni úr einkasafni okkar.“

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing