Halldóra Geirharðsdóttir, Friðrik Dór, Magga Stína, Felix Bergsson, Sunna Ben og hafa sent frá sér drusluákall í tilefni af Druslugöngunni sem fer af stað frá Hallgrímskirkju klukkan 14 á laugardaginn. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.
Fólk er hvatt til að nota kassamerkið #drusluákall til að kalla eftir breytingum í samfélaginu og láta í sér heyra á samfélagsmiðlum.
Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.
Druslugangan er orðin að föstum lið í íslensku samfélagi þar sem að samfélagið rís upp gegn kynferðisofbeldi og stendur með þolendum – gegn gerendum.
Sjá einnig: Borgarstjóri, plötusnúður, þingmaður og rappari styðja Druslugönguna
Druslugangan leggur höfuðáherslu á að færa ábyrgð kynferðisglæpa frá þolendum yfir á gerendur.
„Það er alltof oft þannig að einblínt er á klæðnað, hegðun eða fas þolenda sem afsökun fyrir kynferðisglæpi. Það er ekki til nein afsökun,“ segir í viðburðinum á Facebook.
Fylgstu með undirbúningi Druslugöngunnar á Instagram.