Dr. Gunni hefur sent frá sér myndband við lagið Baugur Mónakó partí! Sjáðu myndbandið hér fyrir ofan.
Myndbandið er sett saman úr frægu partíi Baugs í Mónakó árið 2007. Tina Turner, félagarnir úr þáttunum Little Birtain, sjónvarpsmaðurinn Jonathan Ross og rithöfundurinn Malcolm Gladwell voru á meðal þeirra sem komu fram í partíinu en engu var til sparað.
Lagið er af plötunni Dr. Gunni í sjoppu sem doktorinn sendi frá sér á dögunum.